Fyrirhugað er að halda námskeið í skrautkertagerð fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 19:00 í sal Einingar-Iðju, 2. hæð Skipagötu 14
Akureyri.
- Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður verður minnst kr. 1.000. (Fer eftir því viðkomandi gerir mikið)
- Leiðbeinandi verður Linda Óladóttir
- Skráning á skrifstofu Einingar-Iðju sem fyrst, í síma 460 3600 frá kl. 8 til 16 alla virka daga.
Reynt verður að koma á öðru námskeiði ef þarf.