Skráning stendur yfir í tvær af fjórum ferðum ársins

Nú stendur yfir skráning í tvær af fjórum orlofsferðum sem Eining-Iðja er með í boði í ár. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofu félagsins á Akureyri, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • 27. til 30. júní 2016 – Borgarfjörður-Snæfellsnes
  • 10. til 20. ágúst 2016 – England

Síðasti dagur til að skrá sig í þessar tvær ferðir er 15. apríl 2016.

Nánar má lesa um allar ferðirnar fjórar sem boðið er upp á árið 2016 hér.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.

Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina og aðventuferð til Kaupmannahafnar.