Skráning stendur yfir í innanlandsferðina

Vert er að minna á að skráning stendur yfir í innanlandsferð félagsins í sumar. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðina. Kíkið við á skrifstofur félagsins, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

Það er uppselt í ferð félagsins til Austurríkis dagana 9. til 16. ágúst 2018, en tekið er við skráningum á biðlista.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.

Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.