Vert er að minna á að skráning stendur yfir í tvær af þremur orlofsferðum sem Eining-Iðja er með í boði í ár. Skráningar ganga vel en enn er eitthvað laust í ferðirnar. Bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofu félagsins á Akureyri, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.
Langar þig með í utanlandsferðina þótt þú sért ekki félagsmaður? Þar sem ekki er fullbókað í ferðina var ákveðið að gefa utanfélagsmönnum kost á að koma með. Þeir þurfa að greiða aukalega kr. 10.000 og því mun ferðin kosta þá kr. 235.000.
14. til 16. ágúst 2017 – Kverkfjöll-Dreki-Askja-Holuhraun-Herðubreiðarlindir. Verð kr. 32.000 fyrir félagsmanna og gest.
Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2017 hér.
Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.
Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.