Skráning í ferðir stendur yfir

Úr innanlandsferð 2014
Úr innanlandsferð 2014

Vert er að minna á að nú stendur yfir skráning í tvær af þremur orlofsferðum sem Eining-Iðja er með í boði sumarið 2015. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofu félagsins á Akureyri, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • 1. til 10. júní 2015 – Svíþjóð og Noregur (síðasti skráningardagur er 16. mars nk.)
  • 10. til 13. ágúst 2015 – Hólmavík-Strandir-Snæfjallaströnd-Reykjanes

Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2015 hér.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.

Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.