Skráning í dagsferðina

Vert er að minna á að skráning stendur yfir í dagsferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga sem verður þriðjudaginn 24. júní nk. Farið verður um Öxnadalsheiði til Sauðárkróks og þar snæddur hádegisverður síðan farið fyrir Skagan og yfir Þverárfjall og síðan eins og leið liggur til Siglufjarðar þar sem drukkið verður kaffi. Að því loknu verður svo haldið til Akureyrar á ný.

Ferðin kostar 5.000 krónur á mann.

Skráning og allar nánari upplýsingar um ferðatilhögun má fá á skrifstofu félagsins á Akureyri, Skipagötu 14, og í síma 460 3600.