Skráning hafin í ferðir sumarsins

Í morgun hófst skráning í tvær af þremur orlofsferðum sem Eining-Iðja er með í boði sumarið 2018. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofur félagsins, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • Fjögurra daga fjallaferð um Suðausturland 25. til 28. júní 2018
  • Austurríki 9. til 16. ágúst 2018, 

Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2018 hér.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.

Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.