Í morgun hófst skráning í tvær af þremur orlofsferðum sem Eining-Iðja er með í boði sumarið 2015. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofu félagsins á Akureyri, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.
10. til 13. ágúst 2015 – Hólmavík-Strandir-Snæfjallaströnd-Reykjanes
1. til 10. júní 2015 – Svíþjóð og Noregur
Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2015 hér.
Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.
Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.