SKRÁNING HAFIN Í FERÐIR SUMARSINS

Í morgun hófst skráning í þrjár orlofsferðir sem Eining-Iðja er með í boði sumarið 2014. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofu félagsins á Akureyri, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • 24. júní 2014 – Dagsferð fyrir aldraða félagsmenn. 
  • 11 til 14. ágúst 2014 – Austurland-Loðmundarfjörður-Mjóifjörður.
  • 5. til 16. júní 2014 – Ferð til Ítalíu

Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2014 hér.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.