Skráning hafin í ferðir sumarsins

Í morgun hófst skráning í þrjár orlofsferðir sem Eining-Iðja er með í boði sumarið 2013. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofu félagsins á Akureyri, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • 13. júní 2013 – Dagsferð fyrir aldraða félagsmenn. 
  • 18 til 21. júní 2013 – Ferð um Suðurland.
  • 8. til 16. ágúst 2013 – Ferð til Þýskalands

Nánari upplýsingar um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2013.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.