Frá árinu 1998 hafa starfsmenn Einingar-Iðju farið í skólaheimsóknir í alla 10. bekki á félagssvæðinu. Fyrsta heimsóknin þetta árið var sl. föstudag þegar Anna varaformaður félagsins heimsótti grunnskólann á Grenivík.
Þessi fræðsla skilar sér með aukinni aðsókn ungmenna til félagsins með allskyns mál, en í þessum heimsóknum er m.a. dreift bæklingnum „Láttu ekki plata þig!“ og kynnt fyrir nemendum í hverju starf verkalýðsfélaga er fólgið og um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Bæklingurinn er sérstaklega ætlaður ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Með bæklingnum býður verkalýðshreyfingin allt ungt fólk velkomið í hóp félaga sinna og heitir því liðsinni sínu og væntir einnig þátttöku ungs fólks í félagslegu starfi hreyfingarinnar.
Starfsmenn félagsins hafa einnig farið í Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri og kynnt félagið og farið yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Það eru þær Anna Júlíusdóttir og Hafdís E. Ásbjarnardóttir sjá um þessar skólaheimsóknir þetta árið. Hafdís er einmitt að fara í VMA núna á eftir með kynningu fyrir nemendur skólans og fljótlega mun hún fara í MA.