Það vekur því athygli að samkvæmt verðkönnunum Verðlagseftirlits ASÍ er algengasta lækkun á hveiti á þessu tímabili einungis 1-4% og á kaffi um 3-7%. Svipaða sögu má lesa úr mælingum Hagstofu Íslands en samkvæmt vísitölu neysluverðs þá lækkaði verð á liðnum hveiti og mjöli um 3,8% frá febrúar 2015 og verð á kaffi um 1,9%.
Þegar þessar niðurstöður eru skoðaðar hlýtur sú spurning að vakana hvort að þetta geti talist eðlilegt? Verslunin í landinu verður að svara því hvers vegna verð til neytenda hefur ekki lækkað meira en raun ber vitni, þegar saman fer styrking krónunnar og veruleg lækkun á heimsmarkaðsverði.