Skilafrestur að renna út

Félagið minnir á að fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. janúar nk. þarf að vera búið að senda inn lausnir úr jólablaði félagsins, þ.e. krossgátunni og verðlaunagetrauninni. Hægt er að senda inn svör á netfangið ein@ein.is, senda þau í pósti á skrifstofuna á Akureyri eða mæta með þau í eigin persónu.

Vegleg verðlaun eru í boði!