Skilafrestur að renna út

Félagið minnir á að skilafrestur til að senda inn svör úr krossgátu, getraun og leiknum „Botnaðu nú! sem birtust í síðasta jólablaði félagsins rennur út kl. 16 á morgun, miðvikudaginn 8. janúar. Hægt er að senda inn svör á netfangið ein@ein.is, senda þau í pósti á skrifstofuna á Akureyri eða mæta með þau í eigin persónu. ATH! skrifstofa félagsins verður á 4. hæðinni í Alþýðuhúsinu í janúar og febrúar vegna framkvæmda á 2. hæðinni.

Vegleg verðlaun eru í boði!