Í mars 2024 þarf að skila inn umsóknum og gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.
Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna marsmánaðar 2024 fer fram 27. mars vegna páskanna og því þarf að skila gögnum til félagsins í síðasta lagi, fimmtudaginn 21. mars, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt mánuði síðar.