Skil á gögnum í desember

Í desember þarf að skila inn gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi 18. desember næstkomandi til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2021.