Skatthlutfall og persónuafsláttur

Samkvæmt gildandi lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal í upphafi árs hækka persónuafslátt hvers einstaklings í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði.

Á grundvelli þess verður persónuafsláttur 610.825 kr. fyrir árið 2015, eða 50.902 krónur að meðaltali á mánuði. Persónuafsláttur einstaklinga hækkar því um  4.848 kr. milli áranna 2014 og 2015, eða um 404 kr. á mánuði, og nemur hækkunin 0,8%.

Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 142.153 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð samanborið við 141.025 kr. á mánuði 2014. Hækkunin milli ára nemur 0,8%.

Sjá nánar hér