Sjúkrasjóður og fræðslusjóður - skil á gögnum í dag

Greiðsla dagpeninga og styrkja úr sjúkrasjóði og styrkja úr fræðslusjóði vegna desembermánaðar fer fram 21. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári. Því þarf að skila gögnum til félagsins í síðasta lagi í dag, 18. desember, til að ná þessari útborgun. Þau gögn sem koma inn eftir þann tíma fara með janúargögnum og verður það borgað út í lok janúar 2013.