Sjálfkjörið í stjórn félagsins - nýr ritari

Kl. 12 í dag, föstudaginn 22. febrúar, rann út frestur til að skila inn lista eða tillögum um fólk í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2019-2020. Ekki bárust tillögur eða listar aðrir en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir. Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi, sem fram fer fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 19:30 í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri. 

Björn Snæbjörnsson mun því áfram verða formaður félagsins, en ný í stjórn sem ritari mun koma Hrefna Björg Waage Björnsdóttir. 

Mikil ánægja hefur ríkt með störf stjórnar félagsins í viðhorfskönnunum sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Á hverju ári sér Gallup um framkvæmd slíkrar könnunar fyrir félagið þar sem 1.500 félagsmenn eru spurðir ýmissa spurninga, m.a. um viðhorf til stjórnar og þjónustu félagsins.