Sjálfkjörið í stjórn Einingar-Iðju

Frá aðalfundi 2014
Frá aðalfundi 2014

Á hádegi í dag, fimmtudaginn 26. febrúar, lauk skilafresti á listum eða tillögum um menn í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2015-2016. Ekki bárust tillögur eða listar annar en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir.

Björn Snæbjörnsson mun áfram gegna embætti formanns en breyting verður í embætti ritara. Halldóra H. Höskuldsdóttir sem lengi hefur gegnt því embætti ákvað að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Vilhelm Adolfsson, sem starfar í Becromal, mun taka við sem ritari stjórnar á næsta aðalfundi.

Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi, sem fram fer fimmtudaginn 16. apríl nk. kl. 19:30 í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri.

Stjórn og trúnaðarráð félagsins 2015 til 2016