Sigur í Félagsdómi

Fyrr í dag dæmdi Félagsdómur í svokölluðu Vísismáli sem ASÍ höfðaði fyrir hönd SGS vegna Framsýnar gegn Samtökum atvinnulífsins vegna Vísis hf. Sigur vannst í málinu og segir Björn Snæbjörnsson, formaður SGS og Einingar-Iðju, að þetta hefði verið góður sigur. "Þetta fór eins og við höfum alltaf haldið fram og er þetta bara staðfesting á því." 

Nánar verður fjallað  um dóminn  síðar.