Síðasti skiladagur umsókna er á morgun

Síðasti skiladagur umsókna fyrir orlofshús eða "Viku að eigin vali" næsta sumar er til miðnættis á morgun, miðvikudaginn 1. apríl. Úthlutun fer fram nokkrum dögum síðar. Þeir sem fá úthlutað þurfa að vera búnir að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 22. apríl. Í lok apríl verður opnað á netinu fyrir laus hús. Þá gildir fyrstir koma, fyrstir fá.

Umsóknarblað fyrir sumarúthlutun 2015.

ATHUGIÐ! Best er að skila inn rafrænni umsókn í gegnum Félagavefinn.