Síðasti skiladagur umsókna er 1. apríl nk.

Síðasti skiladagur umsókna fyrir orlofshús eða „Viku að eigin vali“ næsta sumar er til föstudagsins 1. apríl nk. Úthlutun fer fram nokkrum dögum síðar. Þeir sem fá úthlutað þurfa að vera búnir að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 22. apríl. Í lok apríl verður opnað á netinu fyrir laus hús. Þá gildir fyrstir koma, fyrstir fá.

Umsóknarblað fyrir sumarúthlutun 2016.

ATHUGIÐ! Best er að skila inn rafrænni umsókn í gegnum Félagavefinn