Síðast dagur til að skrá sig í dags ferð aldraða er í dag, fimmtudagurinn 18. júní 2015.
Eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin 22. júní nk. Farið verður austur í Kelduhverfi og hádegisverður borðaður í Skúlagarði. Þaðan verður farið að Dettifossi og svo í Mývatnssveit þar sem verður drukkið kaffi í Hótel Reynihlíð. Að því loknu verður ekið til Akureyrar á ný.
Ferðin kostar 6.000 krónur á mann, borgað í rútunni.
Skráning og allar nánari upplýsingar um ferðatilhögun má fá á skrifstofu félagsins á Akureyri, Skipagötu 14, og í síma 460 3600.