SGS: Vel heppnaðir fræðsludagar

Dagana 8. og 9. febrúar stóð Starfsgreinasambandið fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk aðildarfélaga sambandsins og voru þeir að þessu sinni haldnir á Lækjarbrekku í miðbæ Reykjavíkur. Þetta var í þriðja skipti sem slíkir dagar voru haldnir. Mætingin var með besta móti en alls mættu 30 fróðleiksfúsir fulltrúar frá alls 14 félögum, þar af tvö frá Einingu-Iðju, Anna og Þorsteinn. Lagt var upp með að hafa dagskrána sem gagnlegasta og því var leitað til þátttakenda eftir hugmyndum. 

Á dagskrá voru erindi af ýmsum toga. Fyrri daginn fór Bergþóra Ingólfsdóttir, lögmaður ítarlega yfir kröfugerðir og vinnuferla við innheimtukröfur vegna van- eða ógreiddra launa af sinni alkunnu snilld. Henni til halds og traust var Guðrún Elín Pálsdóttir frá Verkalýðsfélagi Suðurlands. Í framhaldinu fjallaði Rakel Davíðsdóttir sálfræðingur um lykilinn að því að skapa góðan starfsanda á litlum vinnustöðum og benti á praktísk ráð í þeim efnum.

Síðari dagurinn var einnig fróðlegur en þá hóf Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, dagskrána á yfirferð um verkefnin sem eru framundan hjá SGS. Þar á eftir stigu þeir félagar, Hjalti Tómasson og Þór Hreinsson frá Bárunni, á stokk og ræddu vinnustaðaeftirlit út frá hinum ýmsu hliðum, þó með ríkri áherslu á starf og reynslu þeirra sem eftirlitsfulltrúa. Í lokin leiddi Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ, gesti um frumskóg lífeyrismálana – eitthvað sem mun vafalaust koma þátttakendum til góða síðar meir.

Eins og áður sagði var þetta í þriðja skipti sem SGS stendur fyrir fræðsludögum fyrir starfsfólk stéttarfélaganna og var góður rómur gerður að þeim í þetta skiptið eins og fyrr. Oft sköpuðust líflegar umræður og fólk var óhrætt að spyrja út í hin ýmsu atriði. Þá eru slíkir dagar ekki síst mikilvægir upp á félagslega þáttinn, þ.e. að fólk allsstaðar af landinu komi saman til að fræðast, ræða saman og eiga skemmtilegar stundir.