SGS - Úttekt á öryggi vegavinnufólks

Á vef SGS segir að starfsmenn Vegagerðarinnar fara ekki varhluta af vaxandi umferðaþunga á þjóðvegum landsins og hafa lýst áhyggjum af öryggi sínu við störf. Áhyggjur starfsmanna snúa að hávaðamengun, loftmengun og hreinlega að fólk virði ekki merkingar þegar fólk er við störf á vegum og hægi ekki á sér. Þetta setur starfsmenn við vinnu á vegum í mikla hættu. Starfsgreinasambandið sá ástæðu til þess í samráði við starfsmenn að óska eftir því við Vinnueftirlitið að úttekt yrði gerð á öryggi starfsfólks. Vonast er til þess að Vinnueftirlitið bregðist skjótt og örygglega við. Þá eru vegfarendur hvattir til að sýna fólki við störf virðingu og tillitssemi í umferðinni.