SGS þingar á Akureyri

4. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett kl. 15:00 í Hofi á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 16. október, undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna. Eining-Iðja á rétt á að senda 12 fulltrúa á þingið sem mun fjalla um kjaramál í aðdraganda kjarasamninga, atvinnumál almennt, húsnæðismál og fleira. Þegar formaður Starfsgreinasambandsins og Einingar-Iðju, Björn Snæbjörnsson, hefur sett þingið munu þau Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, flytja ávörp. 

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn. Af þessum 19 félögum fer Starfsgreinasambandið með umboð fyrir 16 félög í komandi kjaraviðræðum en samkvæmt hefð semur Flóabandalagið sér, þ.e. Efling-stéttarfélag, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK) og Vlf. Hlíf í Hafnarfirði. 

Aðildarfélög SGS eru þessi: 
Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf.