Þriðja árið í röð skipuleggur Starfsgreinasamband Íslands fund fyrir ungt fólk í hreyfingunni, að þessu sinni á Bifröst dagana 30. og 31. maí næstkomandi. Svo vel hefur tekist til síðustu tvö ár að þetta er nú þegar orðinn fastur liður í starfi sambandsins. Hvert aðildarfélag SGS getur sent tvo fulltrúa, eina konur og einn karl þrjátíu ára og yngri á fundinn. Eining-Iðja mun að sjálfsögðu senda tvo fulltrúa á þennan fund eins og hin tvö árin. Dagskráin er skipulögð samkvæmt óskum ungliða sjálfra og í lok hvers fundar er farið yfir óskir fyrir næsta ár.
Að þessu sinni verður byrjað á hópastarfi til að hrista hópinn saman og kynnast betur, þá verður fjallað um verkalýðsbaráttuna í alþjóðlegu samhengi, framtíð vinnumarkaðarins og svo kemur fræðslufulltrúi samtakanna 78 og fjallar um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Að venju munu ungliðarnir hitta formenn félaganna undir lok fundarins og koma þeim áherslum sem þau vilja til skila í sín félög.
Með þátttöku sinni í ungliðafundunum er ekki verið að skuldbinda sig á neinn hátt til frekari þátttöku í verkalýðshreyfingunni en reynslan hefur sýnt að þátttakendur verða flestir virkir í sínu félagi í framhaldinu.