Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands, fyrir hönd 18 aðildarfélaga sinna, skrifaði í dag undir nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkisins með fyrirvara um samþykki félagsmanna í atkvæðagreiðslu. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023.
Helstu atriði samningsins eru sem hér segir:
- Laun hækka í samræmi við lífskjarasamninginn og hækka frá 1. apríl 2019.
- Lágmarksorlof hjá öllum starfsmönnum verður 30 dagar.
- Markviss skref til styttingar vinnuvikunnar. Frá 1. janúar 2021 styttist vinnuvikan um samtals 65 mínútur fyrir fólk í fullu starfi.
- Vinnuvika vaktavikufólks verður 36 stundir m.v. fullt starf og nýtt launamyndunarkerfi tekið upp. Breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem býður upp á manneskjulegra umhverfi með styttri vinnuviku, þar sem miðað er að bættri heilsu, auknu öryggi og betri samþættingu einkalífs og vinnu.
- Tekin er upp ný launatafla sem byggir á álagsþrepum en ekki aldurþrepum, í tengslum við það eru stofnanasamningar endurskoðaðir og er ráðstafað allt að 142 milljónum króna vegna þessa.
- Framlag í orlofssjóð hækkar.
- Fellt út ákvæði um að heimilt sé að láta fólk gista í tjöldum.
- Full orlofsuppbót hækkar úr 50.000 kr. árið 2019 í 53.000 kr. árið 2022.
- Full persónuuppbót (desemberuppbót) hækkar úr 92.000 kr. árið 2019 í 98.000 kr. árið 2022.
- Tekið er upp nýtt ákvæði að félagsmenn sem starfað hafa samfellt í 3 ár geta fengið launað leyfi í samtals í þrjá mánuði til að stunda viðurkennt starfsnám.
Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og vikum en gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðslu um hann ljúki 26. mars.