Vert er að benda á að Starfsgreinasambandið hefur, frá árinu 2013, haldið úti
Fésbókarsíðunni „Vinnan mín“ til að miðla upplýsingum um kjara- og réttindamál til launafólks. Á næstunni mun SGS hins vegar nota
síðuna í öðrum tilgangi, þ.e. til að upplýsa almenning um gang mála í kjarasamningaviðræðum. Á
síðunni verða m.a. birtar vísanir í áhugaverðar fréttir, greinar og pistla sem og upplýsingar um mikilvægar dagsetningar og
viðburði.
Eining-Iðja og SGS hvetja sem flesta að fylgjast grannt með gangi mála og „líka“ við síðuna.