SGS - formannafundur á Akureyri

Öll 19 aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands eiga fulltrúa á formannafundi SGS sem haldinn er í Kjarnalundi á Akureyri í dag, 7. september 2018. Á fundinum er farið yfir verkefni vetrarins, kjaramál, fræðslumál og einstaka verkefni. Sérstaklega verður beint sjónum að eftirlitsstarfsemi stéttarfélaganna og átaksverkefnum á þeim vettvangi.

Formannafundurinn að þessu sinni er haldinn í tengslum við Lýsu – rokkhátíð samtalsins og taka formenn þátt í setningu þeirrar hátíðar um hádegisbil.

Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, situr fundinn fyrir hönd Einingar-Iðju.