SGS: Blaðamannafundur í dag á Akureyri - næstu skref

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS) boðar til blaðamannafundar í Alþýðuhúsinu á Akureyri í dag, þriðjudaginn 17. mars kl. 13:30. Fundurinn fer fram í Norðursalnum á 5. hæð. Á fundinum verður kynntáætlun um fyrirhuguð verkföll til að knýja fram endurnýjun kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins. Meðal þess sem kynnt verður er tímasetning og umfang aðgerðanna.

Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, kynnir aðgerðirnar og verður til viðtals að fundinum loknum.

Nánari upplýsingar veitir Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, í síma 695-1757.