SGS - Bein útsending frá ráðstefnu á morgun

Á morgun stendur Starfsgreinasamband Íslands fyrir ráðstefnu um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Sjónvarpað verður beint frá ráðstefnunni í gegnum facebook-síðu Starfsgreinasambandsins og eru félagar um allt land hvattir til að nýta sér tæknina. Sjö trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem vinna í vaktavinnu munu sitja ráðstefnuna fyrir hönd félagsins.

Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvort starfsfólk velur sér sjálft þessi störf og hvaða áhrif störf sem eru ekki með hefðbundinn vinnutíma hafa á lífsgæði fólks. Hvað getur starfsfólk gert til að draga úr streitu í vaktavinnu? Getur fólk valið að vinna fulla vinnu eða eru hlutastörf dulbúin kjaraskerðing? Hvernig eru kynjahlutföll meðal starfsfólks með óhefðbundinn vinnutíma? Hefur óhefðbundinn vinnutími áhrif á heilsu starfsfólks og þá hvernig? Þessum spurningum og fleiri verður velt upp á ráðstefnunni en dagskráin er blanda af reynslusögum starfsfólks, kynning á niðurstöðum nýlegra rannsókna og umfjöllun sérfræðinga um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum óhefðbundins vinnutíma. Ráðstefnan fer fram á Hotel Natura og hefst hún klukkan 12:30 og stendur til 16:30. Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna ef mætt er á staðinn.

Skráning

Dagskrá
12:30 Setning.
12:40 Innlegg frá félagsmanni.
12:50 Kynning á niðurstöðum norrænnar rannsóknar um hlutastörf, tíðni þeirra og ástæður.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði hjá Háskóla Íslands.
13:35 Tímabundin störf og heilsufar á Íslandi: Niðurstöður úr heilsukönnun Hagstofu Íslands.
Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands.
14:20 Kaffihlé.
14:40 Innlegg frá félagsmanni.
14:50 Nýjustu rannsóknir á áhrifum streitu á heilsu og hver eru úrræðin!
Ingibjörg Jónsdóttir, prófessor og yfirmaður Streiturannsóknastofnunar Gautaborgar.
15:35 Leiðir til að líða betur í vaktavinnu.
Lára G. Sigurðardóttir læknir og fræðslustjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands.
16:20 Samantekt á niðurstöðum og ráðstefnuslit.