SGS ályktar um lagasetningu á verkfall
03.apr | 2014
Starfsgreinasamband Íslands harmar að Alþingi sé að grípa inn í löglega boðaða vinnudeilu
með lagasetningu, án nokkurra boðlegra efnislegra raka. Samningsrétturinn er stjórnarskrárvarinn og einn mikilvægasti réttur launafólks til
að ná fram bættum kjörum. Það er alvarlegt þegar Alþingi grípur inn í það ferli og slíkum úrræðum skal ekki
beitt nema í ítrustu neyð. Lagasetningar á verkföll eru sniðnar að atvinnurekendum og leysir eingöngu þeirra mál, en skikkar starfsmennina til
að vinna áfram á sömu kjörum.