Samþykkt að fjölga varaforsetum ASÍ

Tillaga um fjölgun varaforseta ASÍ úr einum í tvo var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á þingi ASÍ í dag. Það sama má segja um tillögu um fjölgun varamanna í miðstjórn úr 11 í 15 en sú tillaga var raunar samþykkt samhljóða.

Aðrar tillögur laganefndar um breytingar á lögum Alþýðusambandsins voru allar samþykktar.