Í aðdraganda alþingiskosninga 2021 hittir Drífa Snædal, forseti ASÍ, formenn flokka í framboði. Málefni komandi kosninga verða til umræðu og áherslur flokkanna.
Á morgun, miðvikudaginn 12. maí, kl. 10:00, mun Drífa ræða við næsta formann um helstu hagsmunamál íslensks launafólks í aðdraganda komandi kosninga. Samtalið að þessu sinni verður við Gunnar Smára Egilsson, formann framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands. Samtalið verður í beinni á Facebook síðu ASÍ.
Áhugasamir geta sent inn spurningar sem þeir vilja að teknar verði fyrir á asi@asi.is eða með skilaboðum á Facebook síðu ASÍ
Fyrri samtöl má finna á Facebook síðu ASÍ