Samtal ASÍ við flokkana - áherslur í aðdraganda kosninga 2021

Í aðdraganda alþingiskosninga 2021 hittir Drífa Snædal, forseti ASÍ, formenn flokka í framboði. Málefni komandi kosninga verða til umræðu og áherslur flokkanna. 

Fyrsta samtalið verður kl. 10:00 á morgun, þegar Drífa ræðir við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar, um helstu hagsmunamál íslensks launafólks í aðdraganda komandi kosninga. Samtalið verður í beinni á Facebook síðu ASÍ 

Áhugasamir geta sent inn spurningar sem þeir vilja að teknar verði fyrir á asi@asi.is eða með skilaboðum á Facebook síðu ASÍ