Samningur við sveitarfélögin - atkvæðagreiðslu lýkur á miðnætti á morgun

Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning milli SGS og og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslunni mun ljúka á miðnættis á morgun, 8. desember, og hvetur Eining-Iðja þá félagsmenn sem starfa eftir þessum samningi sem ekki hafa greitt atkvæði að taka afstöðu sem fyrst. Ekki geyma að kjósa því þá er hætta á að það gleymist. 

Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu eða vantar aðstoð við að greiða atkvæði geta komið á einhverja af skrifstofum félagsins á venjulegum opnunartíma.

Til að greiða atkvæði fara félagsmenn inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins og smella á „Kjarasamningar 2015“ á forsíðunni. Þar getur viðkomandi greitt atkvæði með því að nota lykilorð sem hann fær sent í pósti. Allir kosningabærir félagsmenn fá sendan kynningarbækling í pósti í tengslum við atkvæðagreiðsluna, en bæklingurinn inniheldur m.a. lykilorð viðkomandi.