Samningur við SA - tveir kynningarfundir í dag

Frá fundinum á Grenivík í gær.
Frá fundinum á Grenivík í gær.

Í dag mun félagið halda tvo kynningarfundi á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins sem undirritaður var í síðustu viku, í Hrísey og á Dalvík. Í gær fóru fram fundir á Grenivík og á Akureyri og á morgun verður fundur í Fjallabyggð. Fundirnir verða túlkaðir yfir á pólsku.

Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögunum.

Kynningarfundirnir verða:

Þriðjudaginn 9. apríl

  • Grenivík, á veitingastaðnum Kontornum kl. 17:00
  • Akureyri, í Hömrum í Hofi kl. 20:00

Miðvikudaginn 10. apríl

  • Hrísey, á veitingastaðnum Verbúðin kl. 17:00
  • Dalvík, í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:00

Fimmtudaginn 11. apríl

  • Fjallabyggð, á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24 b kl. 20:00

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.

Sýnum ábyrga afstöðu!

Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.