Í dag mun félagið halda tvo kynningarfundi á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins sem undirritaður var í síðustu viku, á Grenivík og á Akureyri. Á morgun verða fundir í Hrísey og á Dalvík og á fimmtudagin verður fundur í Fjallabyggð. Fundirnir verða túlkaðir yfir á pólsku.
Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögunum.
Kynningarfundirnir verða:
Þriðjudaginn 9. apríl
Miðvikudaginn 10. apríl
Fimmtudaginn 11. apríl
Dagskrá:
1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
2. Önnur mál.
Sýnum ábyrga afstöðu!
Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.