Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 18 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta.
Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 19. til 26. mars. Í heildina var kjörsókn tæplega 20%. Já sögðu 88,65% en nei sögðu 9,19%. 2,16% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 947 manns.
Samningurinn, sem undirritaður var 6. mars sl., er því samþykktur hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífanda stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.