Samninganefnd SGS samþykkir drög að samkomulagi

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands kom saman til fundar í vikunni til að fjalla um drög að því samkomulagi ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins sem nú liggur fyrir. Það var skýr niðurstaða fundarins að samþykkja samkomulagið sem gerir ráð fyrir styttingu samningstímans til 30. nóvember 2013, hækkun iðgjalda til fræðslumála auk fleiri þátta. Með þessu móti koma umsamdar launahækkanir til framkvæmda 1. febrúar nk. en samkvæmt kjarasamningum hækka laun þá um 3,25%, taxtar um kr. 11.000 og lágmarkslaun fyrir fullt starf fer í kr. 204.000.

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins skipa eftirtalin félög: Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur og Vlsfél. Sandgerðis.

Niðurstaða Einingar-Iðju
Niðurstaða samninganefndar SGS er í samræmi við niðurstöðu fundar sem haldinn var hjá félaginu nýlega. Hann sátu á annað hundrað félagsmenn og í leynilegri atkvæðagreiðslu vildu 75% fundarmanna halda í samninginn. Hljóðið á fundinum var þannig að strax ætti að hefja undirbúning að nýjum samningi og mun það fara í ferli strax á næstu vikum.