Samninganefnd SGS mótar kröfugerð

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins situr nú á fundi í Reykjavík þar sem farið er yfir kröfugerðir félaganna og móta sameiginlega kröfugerð sambandsins hvað varðar launaliði kjarasamnings við Samtök atvinnulífsins. Samningurinn rennur út 28. febrúar nk., en áætlað er að nefndin fundi með SA í næstu viku þar sem kröfurnar verða afhentar.