Samninganefnd félagsins boðuð til fundar

Búið er að boða samninganefnd Einingar-Iðju á fund þriðjudaginn 7. apríl nk. Á fundinum verður m.a. farið yfir stöðuna í samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Tekin verður fyrir tillaga um atkvæðagreiðslu um verkfall hjá þeim er vinna undir samningum SGS og SA og svo fer fram kosning formanns og varaformanns kjörstjórnar.