Samninganefnd ASÍ fundar með framkvæmdastjórn SA í dag

Samninganefnd ASÍ hittir framkvæmdastjórn SA á fundi í dag, mánudaginn 17. desember, þar sem rætt verður um endurskoðun kjarasamninga. Þetta er fyrsti fundur þessara aðila í aðdraganda síðustu endurskoðunar núgildandi kjarasamninga en niðurstaða hennar þarf að liggja fyrir 21. janúar 2013.