Samkeppni um nafn á nýju íbúðaleigufélagi ASÍ og BSRB

Alþýðusamband Íslands og BRSB hafa stofnað íbúðafélag sem starfar í nýju íbúðarkerfi sem nú er verið að taka upp hér á landi. Íbúðakerfið byggir á danskri fyrirmynd og verður hagstæður og öruggur valkostur fyrir fólk á leigumarkaði.

Íbúðafélagið er sjálfseignastofnun sem starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir og er rekin án hagnaðarmarkmiða. Skilyrði er að íbúðirnar verði leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur.

Íbúðafélagið hefur undirritað viljayfirlýsingu við Reykjavík og Hafnarfjarðabær um lóðir fyrir 1150 íbúðir á næstu 4 árum og mun undirbúningur framkvæmda vegna 180 íbúða hefjast á þessu ári. Samhliða þessum fyrstu skrefum vinnur íbúðafélagið að lausn fyrir sveitafélög á landsbyggðinni.

Á heimasíðu ASÍ er óskað er eftir tillögum um nafn á félagið og er því blásið til nafna samkeppni. Nafnið skal vera þjált í notkun og gefa félaginu jákvæða ímynd.

Tillögum um nöfn má skila inn fyrir 16. október á netfangið asi@asi.is eða bsrb@bsrb.is Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu.

Verðlaun kr. 50.000 verða veitt fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.