Samið við sveitarfélögin

Starfsgreinasamband Íslands undirritaði samninga við Samband Íslenskra sveitarfélaga í gærkveldi fyrir hönd ellefu aðildarfélaga sinna, þar á meðal Einingu-Iðju. (Felögin ellefu eru: AFL starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands og Verkalýðsfélag Vesfirðinga).

Samningurinn gildir frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2015 og koma launahækkanir í tveimur skrefum þannig að fyrsta hækkun gildir frá 1. maí 2014 og síðan verða aftur breytingar á launatöflu um áramótin 2014/2015. Breytingar voru gerðar á tengitöflu og launatöflu þannig að misjafnt er hvernig hækkanirnar koma út hjá einstaka starfsfólki en krónutöluhækkanirnar á tímabilinu eru frá tæplega 10.000 krónum upp í 28.000 krónur á mánuði. Til að dreifa hækkuninni með sem sanngjörnustum hætti var starfsmatinu breytt þannig að færri stig þarf nú til að hækka um launaflokk. Kynningarefni með dæmum verður sent von bráðar á félagsmenn. Desemberuppbót hækkar um 15,9%, og verður á árinu 93.500 krónur og framlag sveitarfélaganna í starfsmenntunarsjóði hækkar einnig um 0,1% eins og í öðrum kjarasamningum sem gerðir hafa verið á árinu.

Ákveðið var að halda sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu og skal henni lokið fyrir 22. júlí nk. Félagar fá sent heim kynningarefni og lykilorð vegna hennar.

Samningana má finna hér:
Kjarasamningurinn: SGS_SNS_undirritad_01072014_1
Launatöflur og tengitafla: SGS_SNS_undirritad_01072014_launatafla_1 og SGS_SNS_undirritad_01072014_launatafla_2
Viðræðuáætlun: SGS_SNS_undirritad_01072014_vidraeduaaetlun