Samið við Norðurorku

Í gær var skrifað undir nýjan kjarasamning við Norðurorku sem er á sömu nótum og aðrir samningar sem samþykktir hafa verið að undanförnu. Áður en skrifað var undir fór fram kosning á meðal félagsmenna Einingar-Iðju og Kjalar sem starfa hjá Norðurorku um samninginn.

Á myndinni má sjá trúnaðarmann félagsins hjá fyrirtækinu, Gunnar Berg Haraldsson, setja sitt atkvæði í kjörkassann.

Nýr samningur við Norðurorku og launatafla