Samherji greiðir 378.000 kr. launauppbót

Samherji hf. mun greiða starfsfólki sínu í landi 378 þúsund króna launauppbót nú í desember, til viðbótar umsaminni 50 þúsund króna desemberuppbót. Fyrr í dag skrifuðu Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja og Björn Snæbjörnsson formaður, Einingar-Iðju, undir samkomulag um launauppbótina. 

Samherji greiddi aukalega 72 þúsund krónur í orlofsuppbót til starfsmanna í maí og greiðir því 450 þúsund krónur á hvern starfsmann umfram kjarasamninga á árinu. Starfsmenn sem njóta þessarar launauppbótar nú eru tæplega 500 talsins. 

Gleðitíðindi
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir að þetta séu mikil gleðitíðindi. „Frystihús Samherja á Dalvík og ÚA á Akureyri eru að greiða hæsta bónus sem er á landinu í dag og það hefur verið mikið starfsöryggi í þessum húsum. Ég hef áður sagt að það sé eftirtektarvert þegar slíkt er gert og að þegar vel gengur að starfsfólk fái að njóta góðs árangurs með þessum hætti. Ég fagna því þessari góðu ákvörðun Samherja og gleðst innilega með okkar fólki.“ 

Í tilkynningu á heimasíðu Samherja sem Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson skrifa undir segir: „Rekstur landvinnslu okkar gekk vel á árinu og starfsfólk hefur enn á ný skilað góðu verki. Við erum að skila góðri vöru til okkar viðskiptavina á umsömdum tíma allt árið um kring. Viðskiptavinir okkar setja afhendingaröryggi og gæði sem forsendur langtíma viðskipta. 

Það er ljóst að ástand á mörkuðum hefur þyngst verulega undanfarið og verð afurða er undir miklum þrýstingi. Á næstu misserum verða það hin fjölmörgu smáatriði sem að skipta meira máli. Við verðum stöðugt að halda áfram að bæta okkur og gera aðeins betur í dag en í gær. Það að geta gert aðeins betur er það sem á endanum mun skilja fyrirtækin að í samkeppninni um hylli neytenda. 

Því miður hefur sjávarútvegurinn áfram þurft að eyða orku í deilur innanlands um atvinnugreinina, sem eru engum til framdráttar og er mál að linni. 

Við erum stoltir og glaðir að geta umbunað starfsfólki okkar með þessum hætti nú.“

Myndir með fréttinni eru frá undirritun samkomulags um launauppbót. Þorsteinn Már Baldvinsson og Björn Snæbjörnsson ásamt stjórnendum Samherja, trúnaðarmönnum starfsmanna Samherja og ÚA og Önnu Júlísdóttur, varaformanni Einingar Iðju.