Sameiginlegur fundur - Dalvík og Hrísey

Í kvöld kl. 20:00 verður sameiginlegur fundur á Dalvík og Hrísey þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúa félagsins og varamanni hans í nýju svæðisráði Hríseyjar og Dalvíkurbyggðar. Einnig verður fjallað um Virk og vinnustaðaeftirlit félagsins. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku. Félagar, fjölmennum!

Síðar í vikunni fara fram samskonar fundir í Fjallabyggð og á Grenivík.

  • Mánudagur 27. febrúar
    • Hrísey: Á veitingastaðnum Verbúðin 66 kl. 20:00
    • Dalvík: Í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:00
      • Um sameiginlegan fund er að ræða, staðirnir tveir verða tengdir í gegnum netið.
  • Þriðjudagur 28. febrúar
    • Fjallabyggð: Sameiginlegur fundur fyrir Siglfirðinga og Ólafsfirðinga kl. 20:00 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b.
  •  Miðvikudagur 1. mars
    • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 20:00 

Dagskrá:

  1. Kosning á svæðisfulltrúa og varamanni.
  2. Hvað er VIRK?
  3. Vinnustaðaeftirlit félagsins
  4. Önnur mál.